Ég get ekki sagt annað en að ég í svona rosa fínu skapi! það
verður að teljast til afreka því að undanfarna daga......... eða
vikur........ hummmm samkvæmt móður minni er ég víst alltaf í vondu
skapi þannig að ég hef alla mína ævi verið pirruð nema í dag! í dag
er því merkisdagur!
Hvorki stærðfræði né röflið í bróður mínu né tómur bensíntankur
getur komið mér úr jafnvægi í dag!!!
Það má með sanni
segja að það sé sól í hjartanu- ég er að hlusta á Buena vista
social club, drekka kók með sítrónu og borða kókosbrauð og svo
minnir mig að ég hafi verið að gera eitthvað annað líka……. Hummm
hvað gæti það nú verið………….. ójá!! Stúdentspróf í stærðfræði! Á
meðan er ég svo að plana sumarið í huganum! JÁ ÉG ER KONA OG ÉG GET
GERT MARGA HLUTI Í EINU!!!
Seinna í dag fer
ég svo að kaupa mér miða á Hróarskeldu- þar verður nú fjör!!!
Lilja, Gunna og Erla- tryllta þríeykið, tjald, bjór, bjór og var ég
búin að nefna BJÓR

En var ég búin
að minnast á það að ástmaður minn Bob Dylan ætlar að koma og syngja
nokkur vel valin lög fyrir ástkonu sína- MIG
Þvílíkt augnakonfekt!!!
En eftir
Hróarskeldu er ferð minni (hugsanlega) heitið til spánar þar sem ég
mun hitta hinn ástmann minn! hann Elvar og (hugsanlega) brenna! en
það er efni í annað blogg!!
kv. Lilja Dögg- einum of ánægð með lífið í dag